Færsluflokkur: Bækur

Maríumessa á sumri og hún á afmæli í dag!

Hún á afmæli í dag, hún B. (Bee...), dóttir mín. Sannkölluð orkídea.

Ánægjuleg samleið allt frá byrjun í Skerjafirðinum. Lítil birna nýfædd heima sem reyndist björt ævintýraprinsessa er á leið.

Nú er það Vesturgatan og orkídeudraumar; á vit nýrra tíma. Merkilegt hve það fagra blóm orkídean hefur gægst inn í líf B. á ýmsum tímabilum. M.a. í átthögum forfeðranna í Balquhidder og eins í Mið Ameríku í dýraverndinni þar. Í heilum orkídeuverndargarði í Costa Rica og að passa afskipt dýrin stór og smá. Sætur ilmur orkídea allt umlykjandi. Snemma beygist krókurinn. Ekki að furða að Dalur dýranna hafi reynst uppáhaldsbókin fyrstu æviárin...

Og nú fást afskornar orkídeur loks í íslenskum blómabúðum.

Til hamingju með daginn, orkídea B.


Sólstöður á mildu sumri

Samkvæmt gömlum viðmiðum byrjar sumarið í dag 21. júní; Sumarsólstöður. Lengsti dagur ársins og sólstöðurnar sjálfar á tímakvarðanum 17.06. Hvítur og mildur dagur.

Kannski birti í loftin með kvöldinu og sólarlagið - svo stutt sem það nú er - sjáist vel við mynni fjarðar. Þegar sólin rétt tyllir sér á hafflötin eina örskotsstund laust eftir miðnætti. 

Kaldbakur og Múlinn, öldungarnir tveir, kóróna Sólar í Norðrinu. Merk draumfjöll báðir og búnir að vera hér lengi.

Að baki er nóttin, ein merkasta draumnótt ársins skv. þjóðtrúnni, og gengu mér ýmsir draumar. Ekki skrítið að forfeður vorir hafi trúað að þeir gengju í fjöllin við ævilok...

Já; þá dreymdi stórt gömlu mennina.

Viva!


Gullregnið blómstrar sem aldrei fyrr

Í morgun fór Gullregnið að blómstra. Það blómstrar sem aldrei fyrr og hefur tekið vel við sér í tíðinni síðustu vikur.

Sannkallaður trjágarður lóðin orðin og minnast Reyniviðurinn og Gullregnið í miðjum garði.

Komið hefur fyrir að þau hefji upp raust sína en það er nú önnur saga...


Brasyl komin!

Þá er Brasyl komin frá Amazon! Sérstök helgiathöfn í kvöld þegar lesturinn hefst að loknum ströngum vinnudegi.

Mörg mannanna meinin og erfið mál í gangi þessa sólfögru júnídaga hér í Norðrinu. Sorgir mannanna fara ekki í sumarfrí. Og syndir feðranna fara marga hringi.

  


Sautjándi júní og Skipið hans Stefáns Mána

Það er kominn Sautjándi Júní! Ýmsar vangaveltur þessa þjóðhátíð. Eins og hvert þessi blessuð þjóð stefni, á hvaða siglingu þjóðarskútan sé?

Kannski í sömu átt og Skipið hans Stefáns Mána, dettur mér í hug. En Almættið forði okkur frá því. Blikur á lofti og allt raunar til í okkar samfélagi sem Stefán Máni skrifar um í Skipinu. 

Gat bara ekki hætt að lesa. Frábær penni og þvílíkt persónugallerí. Sortinn og sorinn ýmist úti eða inni eftir því hvernig á er litið. Nefni nú engin nöfn.

Póstmódernískur; skyldi Ljósið dáið? 

En áfram með Sautjándann. Jibbí, jæ...


Í fjallasal - tónninn hreini

Dagurinn mildur og fer batnandi. Fífilbrekka gróin grund að hætti Jónasar Hallgrímssonar og hátíð honum til heiðurs í dag á fæðingarstað hans Hrauni í Öxnadal.

 Skutlaði mínum gamla og góða vini, Helga Hallgríms, náttúrufræðingi, fram í Hraun. Margt um manninn í góða veðrinu. Og túnfíflarnir í blóma lífsins. Gular breiður víða í dalnum.

Í fjallasal háum af Hraundröngum og Þverbrekkuhnjúki; hinn hreini tónn. Ekki að furða að Jónas yrði bæði skáld og náttúrufræðingur, segir Helgi. Ástarstjörnu yfir Hraundranga skýla næturský...

Venus skín hér skærust morgun - og kvöldstjarna. Megi uppbyggingin í Hrauni verða Jónasi til sóma og kynslóðum til heilla.

Stutt milli heimanna. A thin place.


Snorri og Reykholt

Heimsókn í Snorrastofu í dag og nýja Reykholtskirkju. Já, hér er sannarlega allt með miklum myndarbrag. Bókasafnið umvafið mjúkri birtu sem fær mann til að gleyma stund og stað. Vel unnar sýningar um Snorra, goðorð hans, samtíma og ritverk. Margt merkra drauma í ritum hans s.s. í Heimskringlu sem draumahópurinn frá BNA hefur mikinn áhuga á að fræðast betur um.

Meira að segja kvenna og barna og lífs þeirra á Miðöldum er minnst á sérstakri sýningu. Loksins, konur og börn tekin með!

Kirkjan einstök og steindir gluggar Valgerðar Bergsdóttur fágætlega smekkvísir. Mildir brúnir tónarnir látlausir. Ekki krefjandi eins og svo oft er raunin með steinda kirkjuglugga. Orgelið hangandi uppi með geinarnar slútandi yfir kórbekkina - Lífsins tré - talandi.

 Sannarlega góð heimsókn. Allt á sínum stað en sumt lúið. Snorri sjálfur fyrir framan gamla skóla og prestsbústaðurinn hinum megin. Búið að mála gömlu timburkirkjuna - að innan í upprunalegum litum - og uppgröftur í gangi í Garðinum.

 Hér gekk ég um götur ´67-68 og naut lífsins í Reykholti. Átti þar góða daga. Yndislegt var að kynnast þeim sæmdarhjónum, ljúflingnum séra Einari og Önnu, þeirri einstöku lærdómskonu og enskumagister, og lesa hjá þeim í prestsbústaðnum undir landsprófið.

Í Reykholti urðu líka fyrstu kynni mín af hagnýtri sálfræði, af akademískum Parísar/Sorbonne straumum og af UNESCO. Þennan vetur var UNESCO starfsmaðurinn og prófessorinn, Andri Ísaksson, að vinna að nýjungum í kennslufræði og skólastarfi. Vorum við nemendur Reykholts þennan vetur tilraunadýrin og létum okkur bara líka. Allt í anda Snorra og vísdómsins! 

Snorri hefur reynst lífsseigur og er það vel. Frábært ef álíka kraftur yrði settur í uppbyggingu á fæðingarstað hans, Hvammi í Dölum. Þaðan er margs að minnast, ekki síst kvenna og barna þeirra. Að ógleymdri sjálfri formóðurinni djúpúðgu.


Yfir Jökli - bleikleit slikja

Yfir jökli í fegurð gærdagsins, birtist allt í einu bleikleit slikja með gylltu ljósmagni. Og bar ljóma á Stapafell. Mögnuð örskotsstund. Svo hvarf þetta undur.

 Já; ekki er allt eins og það sýnist hér við rætur Jökulsins.

 En góð er þessi ferð á draumaslóð í blíðviðri dagsins. Mjög trúlega verður þessi staður valinn fyrir draumahópinn frá BNA næsta vor.

Kraftbirting Náttúrunnar og hafið bláa svo langt sem augað eygir...

 In dreams...


Á draumaslóð

Dagurinn heilsar hvítur. Mánudagur, hvítsilfraður og í stíl við Luna. Og eins árs afmælisdagur litla HH í Montréal. Verður gaman í dag hjá ungum manni að hoppa og skoppa. Fara að feta æ stærri skref út í hinn stóra heim. 

 Held á draumaslóð að undirbúa komu draumahóps frá Bandaríkjunum. Það er planað langt fram í tímann. Man eftir þessum sið hjá tengdamóður minni, bandarísku. Og hvað mér fannst þetta skrítinn siður. En nú sé ég svo sem gildi hans.

 

Til hamingju enn og aftur HH. Hvítur og fallegur og algjör draumur, minn kæri! 


Formfagur Búlandstindur

Gærdagurinn var heilladrjúgur í suðrænni sólarsveiflu á Héraði. Juanita og Corcovado...

Gagnlegur vinnufundur á Þróunarstofu og þaðan á Djúpavog á fund í Löngubúð. Í þetta notalega gamla verslunar-og pakkhús sem nú er safn Ríkharðs Jónssonar og hýsir jafnframt ráðherrastofu Eysteins Jónssonar. Merkir synir Djúpavogs, báðir aldir upp við Voginn eða í næsta nágrenni hans. Langabúð er sannarlega góð heim að sækja ekki síður nú en á fyrri tíð. Kaffið og vöfflurnar standa alltaf fyrir sínu.

 Djúpivogur á suðaustur ströndinni og Eyrarbakki á suðvestur ströndinni, helstu verslunarstaðir landsins svo öldum skipti. Vegir þess tíma voru djúp og stríð vatnsföllin þarna á milli enda hættur margar og drukknanir tíðar. Og gengju mönnum ýmsir fyrirboðar bæði í draumi og vöku. Hreint ótrúlegt hvernig fólk fór að og virðist í raun hafa ferðast mun meira en nútímamaðurinn heldur.

Af allri fegurðinni við Voginn og sögunni, stendur Búlandstindurinn upp úr í orðsins fyllstu. Formfagur og sveipaður dulúð drauma og töfra. Lógó sveitarfélagsins Djúpavogs. Stærstur pýramída. Og hver veit hvað hann geymir.

Mér eru í minni sögurnar hennar ömmu Ingibjargar af þessum slóðum forfeðranna, sögurnar af íslenska Pýramídanum, Goðaborginni og Rakkaberginu. Sögur af margbreytilegum verum þessa heims og annars.

Já; hvað vitum við svo sem...

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband